Eins og mörgum er ljóst getur regluleg gagnaafritun skipt sköpum þegar eitthvað ber út af í tölvukerfi fyrirtækisins.
Innanhúsafrit - ef gögn eyðast eða skemmast er gott að eiga nýleg afrit af öllum helstu gögnum.
Öryggisafrit - afrit geymd á öruggum stað fjarri upprunalegum gögnum.
Langtímaafrit - afrit geymd í bankahólfi í 7 ár, tilvalið fyrir bókhaldsgögn
Vissir þú að lögum samkvæmt (Reglugerð nr. 598/1998) ber fyrirtækjum að taka öryggisafrit af bókhaldsgögnum og varðveita á tryggan og öruggan hátt aðskilið frá frumgögnum bókhaldsins?
Hafðu ekki áhyggjur og láttu okkur sjá um afritin.