TÆKNIHLIÐIN sérhæfir sig í rekstri og þjónustu tölvukerfa fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki.
Þjónustan fer að mestu leyti fram í gegnum fjarvinnslu auk reglulegra heimsókna. Örugg og traust tölvukerfi eru nauðsyn flestum fyrirtækjum. Það er hins vegar ekki alltaf hagkvæmt að reka heila tölvudeild eða hafa starfsmann í fullu starfi við rekstur tölvukerfis. TÆKNIHLIÐIN tryggir þessum fyrirtækjum traustan og faglegan rekstur á tölvukerfum þeirra á afar hagstæðu verði.
Nálgun okkar felst í því að nýta betur þann tækjabúnað sem fyrir er, frekar en að halda að fyrirtækjum dýrum vélbúnaðar- eða forritunarlausnum. Yfirleitt leggja fyrirtæki mikla áherslu á öryggi gagna og góð netsamskipti. Til þess að þetta sé tryggt er mikilvægt að uppfæra reglulega vírusvarnir og eldveggi, skanna póstþjóna og taka regluleg afrit af gögnum. Fyrirbyggjandi viðhald og eftirlit eykur öryggi í rekstri og lækkar rekstrarkostnað þegar til lengri tíma er litið.
Miklu af þessari þjónustu er nú hægt að sinna í gegnum fjarvinnslu sem gerir okkur kleift að bjóða þjónustu okkar á hagstæðu verði og tryggja á sama tíma lámarks rask í fyrirtækjum við eftirlit og uppfærslur.
Við bjóðum hér þrjá ólíka þjónustusamninga sem koma til móts við fyrirtæki með mismikla þjónustuþörf. Tíminn sem innifalinn er í eftirfarandi tilboðum fer að hluta til í eftirlit og útköll á staðnum en einnig í fjarvinnslu og aðstoð í gegnum síma. Í þeim er þó ekki gert ráð fyrir almennri notendaþjónustu eins og hjálp við notkun venjulegra forrita (s.s. Word, Excel eða bókhaldsforrita).
Leið 1 12 mán. samningur Hér er tekið á mikilvægustu grunnþáttum í rekstri tölvukerfa þótt tíminn í þessari þjónustuleið sé hafður í lágmarki. Þessi leið hentar vel fyrirtækjum sem einungis vilja láta sinna allra mikilvægustu atriðum en eru að öðru leyti nokkuð sjálfbjarga.
Verð frá 7.550.-*
Leið 2 12 mán. samningur Þessi þjónustuleið tekur á fleiri þáttum og gerir einnig ráð fyrir meiri tíma til þess að bregðast við ef eitthvað kemur fyrir. Þessi leið hentar fyrirtækjum sem vilja nánara eftirlit og umsjón með tölvukerfi sínu.
Verð frá 13.800.-*
Leið 3 12 mán. samningur Þessi þjónustuleið kemst næst því að vera eins og fyrirtækið væri komið með sína eigin tölvudeild. Hér er þjónustan orðin mjög umfangsmikil og meiri tími gefst í fyrirbyggjandi aðgerðir og til að bregðast við þegar, eða jafnvel áður en, bilanir eiga sér stað.