Gróa á Leiti er hugbúnaður sem hefur verið í þróun hjá fyrirtækinu undan farin ár. Gróa á Leiti er söm við sig og blaðrar í starfsmenn Tæknihliðarinar um leið og eitthvað misferst í tölvukerfi viðskiptavina fyrirtækisins. En einnig hefur hún bætt sig frá fyrri tíð og heldur nú utan um ýtarlega skráningu á öllum vélbúnaði. Þetta tryggir viðskiptavinum Tæknihliðarinar fljót og rétt viðbrögð ef eitthvað bregður út af.